CORINE og HRL landflokkunarniðurstöður
Dataset Profile
Odm ID | 4f044a9b-8afb-4a59-9ce6-2aa8bffe0ede
|
---|---|
Title | CORINE og HRL landflokkunarniðurstöður
|
Notes | CORINE (Coordination of Information for the Environment) er samevrópsk landflokkun þar sem upplýsingar um mismunandi landgerðir eru fengnar úr nýjum gervitunglamyndum. Flokkunin er uppfærð samtímis á 6 ára fresti í allri Evrópu. Tilgangurinn með CORINE er að útvega sambærileg landnýtingargögn fyrir öll Evrópulönd og fylgjast með umhverfisbreytingum í álfunni með tímanum. Landmælingar Íslands hafa séð um CORINEflokkunina hér á landi frá upphafi. Hér má finna CORINE niðurstöður (gögn og skýrslur) fyrir árin 2000, 2006 og 2012 sem og niðurstöður landgerðabreytinga sem urðu milli 2000 og 2006 sem og milli 2006 og 2012.
HRL (High Resolution Layers) háupplausnarlögin eru 6 talsins: yfirborðsgegndræpi, skógar (trjákrónuþéttleiki), skógar (barrtré/lauftré), graslendi, votlendi og vötn. Þau voru unnin samhliða CORINE flokkuninni 2012 en með mun meiri nákvæmni. Gerð þeirra var boðin út og þau unnin miðlægt hjá nokkrum landupplýsingafyrirtækjum í Evrópu en niðurstöðurnar voru síðan sendar til viðkomandi landa þar sem annars vegar var farið yfir gæði/nákvæmni þeirra og hins vegar gerðar á þeim leiðréttingar samkvæmt ákveðnum reglum. LMÍ sá um að meta og leiðrétta HRL gagnalögin fyrir Ísland 2012. |
Author | LMÍ
|
Author Email | |
Catalogue Url | |
Dataset Url | |
Metadata Updated | 2015-09-29 01:55:02
|
Tags | |
Date Released | |
Date Updated | |
Update Frequency | |
Organisation | Landmælingar Íslands
|
Country | |
State | |
Platform | ckan
|
Language | is
|
Version | (not set)
|